Grindavík UltraGrindavík Ultra
Malarvegur í gegnum hraunbreiðuna á Reykjanesi
Tilkynning frá UMFG · 28. ágúst 2026grindavík ULTRA

Grindavík Ultra fer ekki fram 5. september.

Öll skráningar- og þátttökugjöld verða endurgreidd að fullu.

Skrunaðu
Yfirlýsing

Frá Ungmennafélagi Grindavíkur

Grindavík Ultra, utanvegahlaup sem fyrirhugað var að halda um næstu helgi, mun ekki fara fram að þessu sinni.

Undirbúningur hlaupsins hefur staðið yfir undanfarna mánuði og á þeim tíma var unnið með viðbragðsaðilum að undirbúningi þess. Aðstandendur hlaupsins unnu í góðri trú um að nauðsynleg leyfi og forsendur fyrir hlaupinu væru fyrir hendi. Nú liggur hins vegar fyrir að ekki verður unnt að halda hlaupið á fyrirhuguðum tíma.

UMFG þykir þetta afar leitt, enda hefur mikil vinna verið lögð í undirbúning hlaupsins sem jafnframt átti að vera fjáröflun fyrir félagið. Grindvíkingar þekkja þó vel að stundum breytast forsendur og ákvarðanir eru teknar sem við höfum ekki stjórn á.

Öll skráningar- og þátttökugjöld verða endurgreidd að fullu.

UMFG ætlar áfram að vinna að Grindavík Ultra í góðu samstarfi við viðeigandi aðila. Markmiðið er að hlaupið geti farið fram síðar og orðið reglulegur viðburður í Grindavík.

Við þökkum hlaupurum og öllum sem komið hafa að undirbúningnum fyrir skilninginn og hlökkum til að taka á móti hlaupurum í Grindavík.

Endurgreiðslur

Öll gjöld endurgreidd að fullu.

Skráningu er lokið og öll skráningar- og þátttökugjöld verða endurgreidd að fullu. Hlauparar þurfa ekki að gera neitt.

  • Þú þarft ekki að sækja um endurgreiðslu.
  • Endurgreitt er sjálfkrafa í gegnum netskraning.is, þar sem greiðslan fór fram.
  • Upphæðin skilar sér á sama kort eða reikning og notaður var við skráningu.
  • Spurningum um endurgreiðslur er svarað á info@grindavikultra.is.
Framhaldið

Leiðin bíður.

UMFG vinnur áfram að Grindavík Ultra í samstarfi við viðeigandi aðila. Stefnt er að því að hlaupið fari fram sumarið 2027 og verði eftir það reglulegur viðburður í Grindavík. Leiðirnar eru tilbúnar, kortin teiknuð og allur undirbúningur nýtist áfram.

Hlauparar ofan við Grindavík með bæinn í baksýn
Grindavík · Reykjanes
Um hlaupið

Bær sem rís, leið sem fáir hafa séð.

Eftir jarðhræringar og eldgos undanfarinna ára var Grindavík rýmd og íbúar þurftu að flytja úr bænum. Varnargarðarnir umhverfis bæinn urðu til vegna þessara atburða, risavaxin mannvirki sem fáir hafa séð með eigin augum.

4.000→400
Þar sem áður bjuggu um 4.000 manns sofa nú um 400 í bænum. Grindavík Ultra á að gefa fólki ástæðu til að koma aftur.

Grindavík Ultra nýtir varnargarðana sem einstakt aðdráttarafl og á að hjálpa til við að byggja Grindavík upp sem áfangastað á ný. Allur ágóði rennur til íþrótta- og björgunarstarfs í Grindavík.

Allur ágóði rennur til uppbyggingar í Grindavík:
  • Knattspyrnudeild UMFG
  • Körfuknattleiksdeild UMFG
  • Björgunarsveitin Þorbjörn
Hugmyndin

Sjáðu hlaupið verða til.

Stutt kynningarmyndband um Grindavík Ultra og leiðina ofan á varnargörðunum.

Vegalengdir

Fjórar vegalengdir

Ræst er og endað við íþróttamiðstöð Grindavíkur. Stór hluti leiðarinnar liggur ofan á varnargörðunum. Flestir finna eitthvað við sitt hæfi.

2km
Börn og fjölskyldur
Rástími13:00
HækkunLítil
TímamörkEngin
10km
Byrjendur og almennir hlauparar
Rástími11:00
HækkunLítil
Tímamörk2,5 klst.
Drykkjarstöðvar1
23km
Vanir hlauparar
Rástími10:00
Hækkunum 500 m
Tímamörk5 klst.
Drykkjarstöðvar2
ITRA1 stig
44km
Reyndir hlauparar
Rástími08:00
Hækkunum 1.200 m
Tímamörk8 klst.
Drykkjarstöðvar4
ITRA2 stig

Vegalengdirnar eins og þær voru hannaðar fyrir 2026. Þær eru útgangspunkturinn þegar hlaupið verður haldið, en geta tekið breytingum.

Hraun · Varnargarðar · Jarðhiti · Náttúra
Hlaupaleiðir

Ofan á varnargörðunum.

Það sem gerir Grindavík Ultra einstakt er að stór hluti leiðanna liggur ofan á varnargörðunum. Ræst er og endað við íþróttamiðstöð Grindavíkur. Leiðin liggur meðal annars um Þorbjörn, Sýlingarfell, Bláa lónið og, í lengstu vegalengdinni, Fagradalsfjall.

Leiðirnar eins og þær voru teiknaðar

GPX skrárnar eru leiðirnar sem hannaðar voru fyrir 2026. Hæðarsniðin hér að ofan eru í sama kvarða, svo hægt sé að bera leiðirnar saman.

Umhverfið

Landslagið sem beið hlauparanna.

Hraun, gígar, jarðhiti og Bláa lónið. Leiðin liggur um eitt sérstæðasta landslag Íslands.

Öryggi

Öryggi í fyrirrúmi.

Öryggi þátttakenda var í fyrirrúmi frá fyrsta degi. Björgunarsveitin Þorbjörn átti að annast gæslu og sjúkraflutninga í brautinni og undirbúningurinn var unninn í samráði við Grindavíkurbæ og viðbragðsaðila. Sömu kröfur verða gerðar þegar hlaupið verður haldið.

Algengar spurningar

Spurt og svarað.

Styrktaraðilar

Borið uppi af góðu fólki.

Grindavík Ultra er borið uppi af styrktaraðilum og öll innkoma rennur til góðs. Þeim sem þegar hafa lagt hlaupinu lið er þakkaður stuðningurinn og þolinmæðin. Fyrirtækjum sem komu að gerð varnargarðanna er sérstaklega boðið að tengjast hlaupinu. Áhugasamir hafi samband á info@grindavikultra.is.

Platinum
1.000.000 kr
Aðalstyrktaraðilar með mesta sýnileika.
Gold
500.000 kr
Mikill sýnileiki á vef og á keppnissvæði.
Silver
250.000 kr
Gott vægi og eitt frítt keppnispláss.
Bronze
100.000 kr
Aðgengilegur stuðningur fyrir smærri fyrirtæki.
Um okkur

Hverjir standa að hlaupinu.

Ungmennafélag Grindavíkur (UMFG) heldur hlaupið og er jafnframt eigandi þess. Steinar Atli Skarphéðinsson er skipuleggjari hlaupsins og fékk Sigurjón Örn Sturluson til að aðstoða sig við hlaupaleiðirnar og ýmis verkefni tengd hlaupinu sjálfu. Björgunarsveitin Þorbjörn kemur einnig að skipulagningu. UMFG og björgunarsveitin leggja til sjálfboðaliða sem sinna gæslu og ýmsum verkefnum á viðburðardeginum. UMFG heldur utan um fjármál og allur ágóði rennur til knattspyrnu- og körfuknattleiksdeildar Grindavíkur og Björgunarsveitarinnar Þorbjörns. Grindavíkurbær styður viðburðinn. Sterkir bakhjarlar koma að hlaupinu sem styrktaraðilar og án þeirra væri viðburðurinn aldrei mögulegur.

Takk

Sjáumst í Grindavík.

Til hlaupara sem voru skráðir, sjálfboðaliða, björgunarsveitarfólks og styrktaraðila: takk fyrir stuðninginn og skilninginn. Leiðin er teiknuð og hún bíður okkar.

grindavikultra.is