Persónuvernd

Vafrakökur á þessum vef

Grindavík Ultra (netfang: info@grindavikultra.is) ber ábyrgð á vinnslu persónuupplýsinga á þessum vef.

Vefurinn notar tvær tegundir vafrakaka, og aðeins ef þú samþykkir þær: Google Analytics til að mæla umferð um vefinn og Meta Pixel til að ná til fleiri hlaupara með markaðssetningu. Gögnin fara til Google og Meta og geta verið unnin í Bandaríkjunum.

Engar vafrakökur eru settar fyrr en þú samþykkir. Þú getur breytt vali þínu hvenær sem er með því að smella á „Vafrakökur“ neðst á síðunni. Höfnun hefur engin áhrif á notkun vefsins.

Netfangaskráning

Skráir þú netfangið þitt í reitinn „Láttu mig vita þegar skráning opnar“ geymum við netfangið og dagsetningu skráningarinnar. Netfangið er eingöngu notað til að láta þig vita af fréttum af hlaupinu, fyrst og fremst þegar skráning opnar að nýju. Það er hvorki selt né afhent þriðja aðila.

Listinn er geymdur í efnisveitu vefsins hjá Sanity, sem hýsir gögnin innan Evrópusambandsins. Netfangið er geymt þangað til þú biður um að það verði fjarlægt eða þar til ljóst er að ekki verður af frekari hlaupum. Sendu póst á info@grindavikultra.is til að fá netfangið fjarlægt, eða til að fá að vita hvaða upplýsingar við geymum um þig. Við verðum við slíkri beiðni án tafar.

← grindavikultra.is